Laugardagur 31.10.2009 - 14:03 - Ummæli ()

Árni Páll: Þúsundum heimila forðað frá gjaldþroti. Afborganir geta lækkað um 35%

arni-pall2.jpgÁrni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að með samkomulagi um greiðslujöfnun og skuldaaðlögun fólks verði þúsundum heimila forðað frá gjaldþroti. Fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóðir og Íbúðalánasjóður skrifuðu í morgun undir samkomulag um verklagsreglur til að framfylgja nýjum lögum um greiðslujöfnun.

Haft var eftir Árna Páli í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann teldi að þúsundum heimila yrði nú forðað frá gjaldþroti. Annars vegar með almennu greiðslujöfnuninni, þannig að fólk ætti auðveldara með að standa í skilum, og hins vegar með sértækum aðgerðum allra fjármálastofnana um skuldaaðlögun fyrir þá allra verst settu.

Algeng lækkun á greiðslubyrði láns í erlendri mynt við upphaf greiðslujöfnunar er á bilinu 20-35%. Hjá þeim sem eru með verðtryggð lán, tekin fyrir 1. janúar í fyrra , lækkar greiðslubyrðin um 17%.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is