Laugardagur 31.10.2009 - 13:28
- Ummæli
()
Stjörnur sem fölna ekki með árunum
Flest tökum við því sem gefnu að halla fari á útlitslega fegurð eftir því sem aldurinn færist yfir. Að við náum hápunkti þarna milli tvítugs og þrítugs en svo fari þetta að breytast.
En ef myndir af fræga og ríka fólkinu í útlöndum eru skoðaðar má glögglega sjá að þetta gildir alls ekki um alla. Heilsusamlegur lífstíll og/eða sandur af seðlum virðist gera mörgum fært að líta bara alltaf betur út eftir því sem árunum fjölgar.
Eflaust spilar líka sitthvað fleira inn í, til dæmis útlitsaðgerðir og potoshop, en það verður þó ekki af þessu fólki tekið að það eldist eins og gott vín.
Hér eru nokkur dæmi:
Kylie Minouge þegar hún varð þekkt fyrir leik sinn þættinum um Nágrannana árið 1987

Kylie á 21 öldinni. Fertug og aldrei flottari.

Bon Jovi ekki alveg að átta sig á þessu með hárið. Sirka 25 ára.

Bon Jovi á fimmtugsaldrinum, heitur sem aldrei fyrr…

Catherine Zeta Jones hefur sannarlega alltaf þótt sæt…

…en hún verður bara sætari og sætari enda varð hún 40 á þessu ári.

Sæll vertu ungi Will Smith…

Já Bleeessaður þú 41 árs gamli Will Smith.

Kryddpíurnar þóttu á sínum tíma bestu fyrirmyndir ungra stúlkna sem hægt var að hugsa sér.

Á fertugsaldri eru þær enn fyrirmyndir sömu stúlkna enda sérlega glæsilegar konur…

Jennifer Lopez hefur alltaf verið sæt, það er engin spurning…

…og líkt og með Zetu Jones þá heldur þetta bara áfram

Þó hann væri fölur með músarlitað hár var David Beckham aldrei ljótur strákur heldur…

…en þegar hann byrjaði með Victoriu árið 1997 breyttist hann fyrir augum okkar allra í sólbrúnan og ljósgylltan goðum líkan dreng. Ofurhetju innan fótboltans og kyntákn um gervallann heim.

Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is