Sigurður G sakar Gylfa um að hafa beitt sér gegn Högum. Gylfi: tilhæfulausar dylgjur
Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður, segir að sú saga gangi fjöllum hærra að Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, hafi hringt í Finn Sveinbjörnsson, forstjóra Nýja Kaupþings, og krafst aðgerða bankans gegn Högum – og það strax. Gylfi vísar þessum ásökunum til föðurhúsanna og segir að hvorki hann né nokkur á hans vegum hafi rætt málefni fyrirtækisins við bankann.
Í pistli á Pressunni segir Sigurður G. að Bónusfjölskyldan sé þekkt fyrir annað en að gefast upp og að hann vonist til að henni takist „að öngla saman þeim sjö milljörðum, sem að sögn þarf til að hún haldi Högum.“
Sigurður segir Haga „skilgetið afkvæmi samkeppnisstofnunar ríkisins og Bónusfjölskyldunnar“ og að fjölskyldan „á tuttugu árum, með elju- og útsjónasemi byggt fyrirtækið upp í skjóli gildandi laga- og reglugerðaverks, með blessun samkeppnisstofnunar ríkisins.“
Segir forstjóra Haga hafa móðgað ráðherra
Þá vísar hann til viðtals við Finn Árnason, forstjóra Haga, í Kastljósi Sjónvarpsins, þar sem hann „varði fyrirtæki, sem hann ber ábyrgð á frá degi til dags, af stakri fimi og prúðleika, eins og hans var von og vísa,“ eins og Sigurður kemst að orði.
Í viðtalinu hafi Finnur vikið að Gylfa Magnússyni, viðskiptaráðherra, sem hafi áður setið í stjórn samkeppnisstofnunar ríkisins, „sem sektaði Haga um helling af peningum árið 2008 fyrir að selja mjólk á spottprís árið 2005.“
Í framhaldinu segir Sigurður að sú saga gangi nú „fjöllunum hærra, að viðskiptaráðherranum hafi mislíkað svo mjög ummæli Finns Árnasonar, að hann og tekið upp símann og hringt í nafna hans Sveinbjörnsson, hjá Nýja Kaupþingi og krafist aðgerða af hálfu bankans gegn Högum – og það strax.“
Sé sagan sönn þá staðfesti hún, að mati Sigurðar, að ríkisvæðing viðskiptalífsins gegnum ríkisbankana feli í sér meiri líkur en minni á misbeitingu valds af hálfu stjórnvalda og stjórnenda hins nýja ríkisrekna viðskiptalífs, „sem í blindni fylgja fyrirmælum stjórnarherranna í von um frekari upphefð og öryggi í skjóli þeirra.“
Sigurður segist þó vona að „flökkusagan um hringingu viðskiptaráðherrans sé röng – hans og allra vegna. Við skulum líka vona að fjölmiðlar hafi burði til að leiða hið sanna í ljós í þessu efni, þó þeim finnist nú um stundir öruggar til vinsælda að flytja fréttir af auðmissi athafnamanna, en veita stjórnvöldum aðhald – stjórnvöldum, sem afgirt eru af spunameisturum eins og auðmennirnir áður,“ skrifar Sigurður G. Guðjónsson.
Gylfi vísar ásökunum á bug
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, sendi í morgun frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir ásakanir Sigurðar dylgjur sem eigi sér enga stoð í veruleikanum.
„Vegna þessa er rétt að taka fram að þessi ásökun Sigurðar er tilhæfulaus með öllu. Ég hef aldrei rætt málefni Haga við Finn Sveinbjörnsson eða aðra starfsmenn Nýja Kaupþing. Ég hef raunar aldrei rætt málefni Haga við neina bankamenn og engin afskipti haft af fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins. Það hefur heldur enginn annar gert að að minni beiðni, hvorki starfsmenn efnahags- og viðskiptaráðuneytisins né aðrir,“ skrifar Gylfi Magnússon.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is