Mánudagur 02.11.2009 - 10:28 - Ummæli ()

Líklegt að þingmenn vilji svör ráðherra um mál Kaupþings og Haga í fyrirspurnartíma

althing.jpgLíklegt er talið að áform Nýja Kaupþings um 50 milljarða niðurfellingu skulda Haga, verslanakeðju Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, komi til umræðu í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra sitja þá fyrir svörum þingmanna í óundirbúnum fyrirspurnartíma.

Áform Kaupþings hafa skapað miklar umræður og ólgu í þjóðfélaginu, en bankinn fullyrðir að endanlegar ákvarðanir hafi ekki verið teknar.

Svokallaðri kjördæmaviku er lokið og hefjast þingfundir að nýju kl. 15 í dag. Að loknum fyrirspurnum til ráðherra verða nokkur mál tekin til afgreiðslu.

Þingmenn voru flestir mættir á skristofur sínar í morgun og þrjár fastanefndir sátu á fundi: fjárlaganefnd, heilbrigðisnefnd og iðnaðarnefnd. Á fund fjárlaganefndir voru væntanlegir ýmsir gestir til að ræða fjárlagafrumvarpið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is