Mánudagur 02.11.2009 - 12:41 - Ummæli ()

Guðlaugur vill fund í viðskipta- nefnd: Spyr hvaða reglur gilda um skuldameðferð fyrirtækja

gudlaugurthorthoirdarson.jpgGuðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður hefur óskað eftir því að haldinn verði sérstakur fundur í viðskiptanefnd Alþingis, þar sem forsvarsmenn bankanna sitji fyrir svörum um það hvaða reglur gildi um um skuldameðferð og aðkomu eigenda að fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja sinna.

Líklegt er tilefnið séu umræður um meint áform Nýja Kaupþings að fella niður allt að 50 milljarða skuld móðurfélags verslunarkeðjunnar Haga, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, við bankann.

Bankastjóri Nýja Kaupþings sagði við fjölmiðla í morgun að engin ákvörðun um skuldaniðurfellingu hefði verið tekin.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is