Búist við vaxtalækkun á fimmtudaginn. Vextir gætu farið úr 12% í 11 eða 11,5%
Peningastefnunefnd kynnir ákvörðun um stýrivexti Seðlabankans á fimmtudaginn. Greining Íslandsbanka telur í fréttabréfi sínu í morgun að nefndin muni ákveða að lækka vextina um 0,5-1,0 prósentustig, þ.e. úr 12% niður í 11,0-11,5%. Líkurnar séu öllu meiri á 0,5 prósentustiga lækkun.
Talið er að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) sé búinn í leggja blessun sína yfir einhverja lækkun stýrivaxta. Í fréttatilkynningu sjóðsins á miðvikudaginn kom m.a. fram að framþróun í uppbyggingu fjármálakerfisins og fjármálum hins opinbera ætti að styrkja tiltrú og opna rými fyrir hóflega lækkun vaxta. Þetta hefur verið túlkað sem vísbending um að sjóðurinn telji svigrúm fyrir lækkun stýrivaxta Seðlabankans nú.
Fyrir liggur að peningastefnunefnd hefur afstöðu sjóðsins til hliðsjónar í ákvörðunum sínum og því líklegt að ummæli AGS vegi þungt þegar nefndin kemur saman til að ræða vaxtamálin.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is