Miðvikudagur 04.11.2009 - 11:26 - Ummæli ()

Vilhjálmur Bjarnason: Hagar fari í gjaldþrotameðferð. Reksturinn verði boðinn út

vilhjalmurbjarnason.jpgEðlilegast er að verslunarkeðjan Hagar fari í venjulega gjaldþrotameðferð. Reksturinn verði síðan boðinn út á sama hátt og rekstur Árvakurs í byrjun þessa árs.

Þetta segir Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags fjárfesta í samtali við DV í dag.

Í gær var sagt frá því að rúmlega eitt hundrað fjársterkir aðilar ætluðu að gera Nýja Kaupþingi tilboð í 60% hlut í Högum.

Miklar umræður hafa verið um málefni fyrirtækisins undanfarna daga. Hagar, sem reka Bónus, Hagkaup, 10-11 og fjölda annarra verslana, eru í eigu eignarhaldsfélagsins 1998 ehf sem Jón Ásgeir Jóhannesson og faðir hans, Jóhannes í Bónus, eiga. Hreinn Loftsson, útgefandi DV, á einig hlut í Högum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is