Fimmtudagur 05.11.2009 - 15:51 - Ummæli ()

Árni M. Mathiesen um bankahrunið: „Gerðum ekki neitt sem telja megi mistök“

arni-math-vidskiptablad.jpgÁrni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, segir í viðtali um bankahrunið við Viðskiptablaðið í dag að helstu mistök stjórnvalda hafi verið að leyfa bankakerfinu að verða of stórt.

Árni segir m.a. í viðtalinu: „Ég sé ekki að við gerðum neitt þá sem telja megi mistök. Mistökin sem við gerðum voru miklu fyrr og fólust í því að leyfa bankakerfinu að verða svona stóru og sérstaklega að leyfa bönkunum að taka innlán í gegnum útibú erlendis. Það dylst engum að bankakerfið var orðið of stórt fyrir þennan Seðlabanka og þennan ríkissjóð.“

Hann segir að þær upplýsingar sem hann hafði sem fjármálaráðherra hafi gengið út á „að við værum hér með góða banka sem væru í ákveðnum erfiðleikum sem þeir ættu að komast í gegnum vegna styrks síns á öðrum sviðum. Það voru þær upplýsingar sem ég hafði undir höndum.“

„Ég get alveg beðist afsökunar á mínum þætti en hann felst líklega helst í því að hafa ekki gengið harðar fram í því að reka ríkissjóð með afgangi og helst hafa hann meiri. Ég var líklega of tilbúinn til þess að hlusta á samráðherra mína um að það ætti að dreifa góðærinu sem mest um allt kerfið. Ég held að það hafi ekki skipt sköpum en kerfið hefði þá verið betur tilbúið til þess að takast á við þá erfiðleika sem er við að glíma í dag.“

Árni fjallar í viðtalinu m.a. um umtöluð símtöl frá Gordon Brown forsætisráðherra Breta og Alistair Darling fjármálaráðherra til þeirra Geirs Haarde skömmu fyrir hrun. Hann segist telja að þau hafi verið „hluti af leiknum til þess að friða samviskuna“ bresku ráðherranna en hafi ekki skipt sköpum um hvernig fór.

„Svo fara þeir inn í bankana dagana á eftir og menn verða að átta sig á því að það eru ekki ákvarðanir sem eru teknar í skyndingu. Það er eitthvað sem var búið að undirbúa. Þeir voru örugglega búnir að undirbúa það að fara inn í íslensku bankana og ég tel að þeir hafi ætlað að vera búnir að klára mál íslensku bankanna áður en þeir kæmu með björgunarpakkann sem var kynntur sama daginn og þeir fóru inn í Singer & Friedlander. Ég held að þetta hafi allt verið skipulagt hjá þeim og þessi samtöl þeirra við okkur Geir hafi verið hluti af leiknum til þess að friða samviskuna. Við hefðum nánast þurft að lofa því að taka ábyrgð á öllum bönkunum og öllu bankakerfinu til þess að þetta hefði ekki orðið.“ Árni segir bresku ráðherranna klárlega hafa haft mótaðri hugmyndir um aðgerðirnar en þeir létu uppi um og það hafi alls ekki verið heiðarlegt. „Ég held að tilgangurinn hafi verið sá að gera einhverjar ráðstafanir gagnvart íslensku bönkunum til að tryggja það að þeir yrðu ekki hluti af breska björgunarpakkanum,“ segir Árni í viðtalinu.

Í viðtalinu kemur fram að Árni hafi að undanförnu verið að koma sér aftur inn í sitt gamla fag, dýralækninngarnar, og starfi nú við Dýralæknaþjónustu Suðurlands í sínu gamla kjördæmi.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is