Vilhjálmur Egilsson ekki með í undirritunarathöfn nýja spítalans: „Of miklar umbúðir“
Lífeyrissjóðurinn Gildi, þriðji stærsti lífeyrissjóður landsins, var ekki meðal þeirra 20 lífeyrissjóða sem undirrituðu viljayfirlýsingu um byggingu nýs Landspítala í gær. „Þetta var rætt á stjórnarfundi og mönnum fannst of miklar umbúðir felast í þessari stóru yfirlýsingu og miklu undirritunarathöfn,“ segir Vilhjálmur Egilsson, stjórnarformaður Gildis á mbl.is.
Stjórn Gildis sendi frá sér sérstaka yfirlýsingu þar sem stjórn lífeyrissjóðsins lýsir yfir vilja til samstarfs við stjórnvöld við að kanna hvort og með hvaða hætti sjóðurinn er tilbúinn til þess að koma að undirbúningi að byggingu nýs Landspítala.
„Við vildum ekki vera með á þessari yfirlýsingu en sendum sjálfstæða yfirlýsingu um að við vildum vera með í undirbúningnum. Almennt eru menn með málinu en vilja horfa á innihaldið en ekki umbúðirnar,“ segir Villhjálmur.
Í yfirlýsingu sjóðisins segir m.a.:
„Sérstaklega verði kannað með hvaða hætti sjóðurinn geti komið að fjármögnun verkefnisins. Aðkoma sjóðsins er háð því að áhætta og arðsemi verði ásættanleg fyrir sjóðinn.
Í samræmi við stöðugleikasáttmála stjórnvalda og heildarsamtaka aðila vinnumarkaðarins um uppbyggingu atvinnulífsins er ein meginforsenda þessa verkefnis, að störf sem verða til við undirbúning og framkvæmd þess verði á vegum innlendra aðila og hafi áhrif á atvinnustigið hér á landi.
Endanleg ákvörðun um þátttöku í fjármögnun verkefnisins verður ekki tekin fyrr en samkomulag hefur náðst um fyrrgreind atriði og önnur sem tengjast uppbyggingu þess, arðsemi, áhættu og fyrirkomulagi fjármögnunar,“ segir í yfirlýsingu Gildis-lífeyrissjóðs.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is