Lífeyrissjóðirnir nálgast sömu stærð og fyrir hrun. 1800 milljarða markið í sjónmáli
Hrein eign lífeyrissjóðanna í krónum er metin 181 milljarði hagstæðari en hún var í október 2008. Stærstur hluti eigna þeirra hefur haldið áfram að gefa vel af sér. Uppgjöri hrunsins er þó ekki lokið og enn ríkir óvissa um niðurstöðuna.
Nýtt yfirlit Seðlabanka Íslands á eignastöðu lífeyrissjóðanna sýnir að hrein eign sjóðanna í september var 1.735 milljarðar króna en var í sama mánuði 2008 1.772 milljarðar. Strax eftir hrun, í októbermánuði 2008, var eign sjóðanna metin 1.554 milljarðar. Þannig var eignarýrnun sjóðanna við hrunið var metin 217 milljarðar króna en hefur nú nánast gengið til baka.
Gögn Seðlabankans benda því til þess að bankahrunið hafi snert íslensku sjóðina minna en svartsýnustu menn óttuðust. Niðurstaðan hjá lífeyrissjóðum víða annars staðar í heiminum var verri, þó að taka verði tillit til ólíkra reikniaðferða. Talið er að lífeyrissjóðir aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar hafi séð á eftir fimmtungi eigna sinna frá byrjun árs 2008 til októberloka það ár.
Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir í Fréttablaðinu það rétt að stærð sjóðanna nálgist að vera sú sama í krónum talið og hún var fyrir hrun. Hann setur þó þann fyrirvara að höggið í hruninu hafi verið þungt og tölfræði Seðlabankans um krónueign segi ekki alla söguna. „Það er hins vegar rétt að við nálgumst aftur átján hundruð milljarða markið. Stór hluti eigna sjóðanna hefur haldið áfram að skila góðri ávöxtun og það er meira borgað inn í sjóðina en greitt er út úr þeim. Það er mjög ánægjulegt að við séum að ná sömu stöðu í krónum talið og fyrir ári.“
Uppgjöri hrunsins í reikningum lífeyrissjóðanna er ekki lokið og nokkur óvissa ríkir því enn um endanlegt mat á eignum þeirra. Stærsta höggið var tap í hlutabréfum innanlands en á móti hafa sjóðirnir hagnast á erlendum eignum sem byggðar hafa verið upp á löngum tíma.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is