Laugardagur 14.11.2009 - 16:50
- Ummæli
()
Búið að opna verslunina Kost eftir tæknileg vandræði fyrri hluta dags
Matvöruverslunin Kostur opnaði fyrir viðskiptavinum eftir hádegi í dag, en ekki tókst að opna í morgun vegna tæknilegra vandræða við verðmerkingar. Í tilkynningu segir að salan gangi að mestu leyti greiðlega fyrir sig.
Þá segir að stöðugur straumur fólks hafi legið í verslunina frá því í morgun.
Jón Gerald Sullenberger framkvæmdastjóri Kosts hefur staðið vaktina við innganginn, þrátt fyrir að vera nær ósofinn við að setja búina upp í nótt, og heilsað hverjum einasta viðskiptavini með handabandi. Kostur opnar svo aftur á morgun kl.12:00.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is