Eva Joly: Hrunið umfangsmeira en Elf-málið. Ekki von á ákærum fyrr en í lok næsta árs
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna efnahagshrunsins, segir að ekki sé von á fyrstu ákærum vegna hrunsins fyrr en í lok næsta árs. Rannsóknin sé gífurlega umfangsmikil, mun umfangsmeiri en Elf-málið í Frakklandi, sem þó náði upp í efstu lög franska stjórnkerfisins.
Þetta segir Eva Joly í ítarlegu viðtali við Financial Times í dag.
„Þetta er mun stærra en Elf, en við vitum samt ekki enn hversu miklu stærra,“ segir Joly við blaðið. Hún segir einnig að rannsókn bankahrunsins kunni að taka um fimm ár, því öðruvísi náist ekki skýr mynd af málinu.
Joly segist hafa orðið vör við að almenningi finnist rannsóknin taka of langan tíma líkt og ekkert sé að gerast. „Fjölmargt er að gerast í rannsókninni sem ekki er sýnilegt opinberlega og við erum að ná miklum árangri. En það er mjög mikilvægt að ákæra ekki of snemma, ekki fyrr en við höfum heildarmyndina.“
Joly segir mikilvægt að hafa varann á gagnvart siðlausum kaupsýslumönnum. „Margir þeirra bíða einungis eftir því hefjast handa þar sem frá var horfið. En við megum ekki gleyma því að kerfið er fársjúkt.“
Í greininni segir að Eva Joly hafi sex franska sérfræðinga sér til aðstoðar sem hafi unnið með henni í öðrum svikamálum. „Mitt hlutverk er þó að ekki að fara ofan í öll smáatriði við rannsóknina. Ég reyni að hvetja aðra til að fá trú á því að þeir ráði við verkefnið, hjálpa þeim að sjá ýmsar gildrur og að vinna með þeim áætlun.“
Í greininni kemur einnig fram að rannsókn á sakamálum tengdum íslenska bankahruninu, kunni að verða stærsta rannsókn á hvítflibbaglæpum sem gerð hefur verið. Rannsóknin teygi anga sína út fyrir Ísland og hún muni koma við ýmsa evrópska banka líka. „Það mun koma í ljós að það sem gerðist á Íslandi er ekki bara bundið við Ísland,“ segir Eva Joly.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is