Á eftir beint frá bónda kemur beint úr bátnum. Fiskmarkaður við Reykjavíkurhöfn?
Allnokkrir aðilar hafa sýnt því áhuga að koma að stofnun og uppsetningu fiskmarkaðs við gömlu höfnina í Reykjavík en ár og dagur er síðan almenningur hefur getað orðið sér úti um glænýtt fiskmeti við bryggjur landsins. Sakna þess margir og enn fleiri telja slíkt eðlilegt næsta skref nú þegar átak á borð við Beint frá bónda hefur fengið jafn góðar viðtökur og raun ber vitni.
Ekkert er raunar fast í hendi að svo komnu máli en að sögn Þóru Valsdóttur, verkefnisstjóra hjá Matís, hefur hópur fólks lýst áhuga að standa að slíkum markaði í framtíðinni í Reykjavík.
Hún hefur ásamt fleiri kollegum sínum gert úttekt á þeim möguleikum sem þarna standa fólki til boða og komist að þeirri niðurstöðu að góður grundvöllur sé til reksturs fiskmarkaðar. „Það er næstum undarlegt að við sem svona mikil fiskveiðiþjóð skuli ekki geta nálgast nýjan fisk við bryggjusporðinn. Ég sé þetta sem eðlilegt skref að hægt verði að kaupa nýjan fisk á markaði eins og gerist erlendis. Ég veit til þess að hugmyndir hafa verið ræddar um slíkan markað við gömlu bryggjuna í höfuðborginni en slíkur markaður getur þrifist víðar en þar. Fiskur er svo hollur og góður að það yrði bara af hinu góða að sjá slíka markaði rísa sem víðast.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is