Balkenende svarar Jóhönnu en minnist ekki á fund
Jan Peter Balkenende forsætisráðherra Hollands segir í svarbréfi 12. nóvember til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að samkomulag um breytingar á Icesave hafi náðst á fundum fulltrúa Íslands, Bretlands og Hollands sem hafi verið haldnir nokkrum dögum eftir að hann hafi fengið bréf hennar um málið frá 28. ágúst í hendur.
Jóhanna hefur legið undir gagnrýni fyrir að að fá ekki svar ráðherranna við bréfinu þar sem hún fór fram á atbeina ráðherranna við lausn Icesave málsins og bað um fundi með þeim ef það gæti leyst málið. Jóhanna sagði í þingumræðu um málið nýlega að ráðherrafundir hefðu ekki verið taldir nauðsynlegir.
Forsætisráðuneytið birti í dag svarbréf Balkende. Þar minnist hann ekki á hugsanlegan fund vegna málsins, en lýsir þess í stað ánægju með að fundir sendinefnda ríkjanna í Haag, London og Reykjavík hafi skilað árangri og samkomulag náðst milli ríkjanna sem ætti að leysa málin kringum tryggingar innistæðna á reikningum Landsbankans.
Balkenende segir þetta mikilvægt skref í átt að lokaniðurstöðu milli ríkjanna. Hann segist vonast til þess að gengið verði frá lokasamkomulagi í kjölfar samþykktar á frumvarpinu um ríkisábyrgð á Alþingi. Með endanlegri lausn málsins verði þetta erfiða tímabil að baki og góð samskipti ríkjanna styrkt enn frekar.

Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is