Páll Hreinsson: Hvorki megum né eigum ákæra ráðherra, aðeins Alþingi ákveður það
Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, segir það Alþingis að meta hvort tilefni sé til að ráðherra sæti ábyrgð og að þau í rannsóknarnefndinni hvorki megi né eigi að leggja það til í skýrslu sinni, að ráðherra eða ráðherrar í ríkisstjórn Geirs. H. Haarde verði dregnir fyrir landsdóm. Þetta segir hann í samtali við Morgunblaðið í framhaldi af vangaveltum Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, í nýrri bók sinni. Páll segir Styrmi og Morgunblaðið misskilja þetta ferli.
„Okkur er samkvæmt lögunum um rannsóknarnefnd Alþingis falið að leiða fram staðreyndir málsins, eða eins og segir í 1. grein laganna: „Tilgangur laga þessara er að sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis leiti sannleikans um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða“,“ sagði Páll í samtali við Morgunblaðið.
Páll segir að mest af störfum hans og samnefndarmanna hans, þeirra Sigríðar Benediktsdóttur og Tryggva Gunnarssonar, snúist um að afla upplýsinga og setja staðreyndir fram í samhengi.
„Auk þess er okkur falið, samkvæmt 1. grein laganna, það verkefni að leggja mat á það hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna og slíkt mat reynist okkur talsvert þungbært, það verður bara að segjast eins og er,“ segir Páll og vísar þar til síðari hluta 1. greinar laganna en þar segir: „Þá skal hún leggja mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi á Íslandi og eftirlit með henni, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því.“
Páll bendir á að í lögunum séu fyrirmæli um að vakni við rannsókn nefndarinnar grunsemdir um að refsiverð háttsemi hafi átt sér stað tilkynni hún ríkissaksóknara það. Sömuleiðis ef nefndarmenn fá vitneskju um að einhver/einhverjir hafi brotið af sér í starfi.
„En við meðferð þingsins á frumvarpinu var bætt við setningu um ráðherraábyrgð, þar sem segir „um ábyrgð ráðherra fer samkvæmt lögum um ráðherraábyrgð“ og þá er engin tilkynningaskylda á okkur,“ segir Páll. Páll segir að í þessu felist af hálfu Alþingis, að komist rannsóknarnefndin að þeirri niðurstöðu að ráðherra eða ráðherrar hafi gerst sekir um mistök eða sýnt af sér vanrækslu, þá komi til kasta Alþingis að meta hvort tilefni sé til að ráðherra sæti ábyrgð fyrir það, í samræmi við lögin um ráðherraábyrgð.
„Það kemur því aldrei til þess að við í rannsóknarnefndinni megum eða eigum að leggja það til að ráðherra eða ráðherrar verði ákærðir. Það var séð til þess af hálfu Alþingis, að við fengjum ekki það vald í hendurnar, heldur yrði þetta þvert á móti að vera pólitísk ákvörðun þingsins,“ segir Páll Hreinsson við Morgunblaðið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is