Formaður Blaðamannafélagsins: Vill ríkisaðstoð til handa fjölmiðlum landsins
Formaður Blaðamannafélags Íslands, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, vill að ríkið styðji við fjölmiðla hér á landi en ekkert slíkt ákvæði er að finna í nýjum fjölmiðlalögum sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu dögum. Segir Þóra slíkan ríkisstuðning algengan á Norðurlöndunum til að tryggja innviði þeirra og lýðræðislega umræðu.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun. Að hennar mati er margt jákvætt í frumvarpinu ekki síst reglur um gegnsæi eignarhalds á fjölmiðlum, vernd heimildarmanna og skerpt sé á öllum ábyrgðarreglum. Í heildina séu þó ný fjölmiðlalög vonbrigði ekki síst með tilliti til hversu mjög hefur verið rætt um slík lög í þjóðfélaginu.
Fjölmiðlar á brauðfótum
Þó vanti alfarið að fjölmiðlar njóti stuðnings ríkisins sem hún segir alþekkt annars staðar. „Við erum eina þjóðin á Norðurlöndum þar sem enginn stuðningur er við aðra fjölmiðla en ríkisútvarp. Mér finnst að við eigum að skoða allar leiðir til að efla fjölmiðla og tryggja fjölbreytni og fjölræði þar. Við stöndum uppi með fjölmiðla á brauðfótum og mikil óánægja er með ástandið þar. Ég held að við þurfum að taka afstöðu til þessarar spurningar til að ná árangri.“
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sett verði að stofn svokölluð fjölmiðlastofa sem fylgist með að fjölmiðlar fari að reglum en sú staða mála er í samræmi við reglur Evrópusambandsins. Stofan sú fylgist meðal annars með að reglur um áfengisauglýsingar séu virtar og að eignarhald á miðlunum sé opið og gegnsætt öllum stundum. Frumvarpið hefur undanfarið verið til kynningar á vef menntamálaráðuneytisins og fólki gefist þar tækifæri til að gera athugasemdir. Það fer fyrir þingið á næstu dögum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is