Aðildarviðræður við ESB gætu hafist næsta vor að mati Evrópuþingmanns
Fulltrúi Evrópuþingsins sem á í samningaviðræðum við íslensk stjórnvöld vegna aðildarumsóknar landsins segir eðlilegt að búast við að leiðtogar sambandsins gefi grænt ljós að að viðræður hefjist með vorinu. Er það öllu seinna en íslensk stjórnvöld vonuðust til en desember eða janúar hefur verið þar inni í myndinni.
Þetta segir í frétt RÚV í dag.
Fjallað var almennt um stækkunarmál Evrópusambandsins á þingi þess í Strassborg og þar lét Pat Gallagher, írskur Evrópuþingmaður sem leiðir samningaviðræður um aðild Íslands að sambandinu, þessar hugmyndir í ljós. Sagðist hann vongóður að viðræður við íslensku sendinefndina yrðu einbeittar en þó umfram allt vinsamlegar.
Sagðist hann ennfremur vona að samstarfsnefnd Alþingis og Evrópuþingsins vegna aðildarviðræðanna hæfi störf fljótlega enda stutt síðan íslensk sendinefnd skipuð þingmönnum hafi fundað með honum í Brussel.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is