InDefense skorar á forsetann að synja nýjum Icesave-lögum. Vill þjóðaratkvæðagreiðslu
Efnt hefur verið til undirskriftasöfnunar af hálfu InDefence hópsins þar sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er hvattur til að synja breytingartillögum vegna Icesave samningsins verði tillögurnar samþykktar á Alþingi. Gerir hópurinn kröfu um að málið verði borið undir íslensku þjóðina.
Þetta kemur fram í DV en samtökin sendu frá sér fréttatilkynningu vegna málsins. Bent er á þar að staðfesting forsetans á lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave samningana síðasta sumar hafi verið með sérstakri áritaðri tilvísun til fyrirvara Alþingis. Séu fyrirvarar Alþingis fyrir borð bornir í nýja Icesave frumvarpinu.
Alþingi Íslendinga hefur nú til meðferðar umrætt frumvarp til breytinga á lögum nr. 96/2009 um ríkisábyrgð á Icesave samningum. Með samþykki, sem samtökin vona að ekki komi til, segja þau ljóst að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar sé stefnt í hættu vegna krafna sem fullar forsendur eru til að þjóðin hafni.
Ennfremur segir í tilkynningunni að framtíðarkynslóðir Íslands verði skuldsettar og lífskjör þeirra skert um langa framtíð gangi Alþingi frá breytingartillögum þeir er fyrir liggi og samþykki þær.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is