Þriðjudagur 01.12.2009 - 23:26 - Ummæli ()

Láglaunafólki mismunað eftir sveitarfélögum. Sumir fá jólauppbót en aðrir ekki.

thumb.gifSýna þarf fram á viðvarandi fátækt síðustu sex mánuði til að einstaklingar í höfuðborginni hljóti jólauppbót eða styrk vegna jólanna en hjá mörgum öðrum sveitarfélögum

Íbúar í Reykjavík sem eru undir fátækrarmörkum fá ekki styrk til jólanna nema því aðeins að þeir geti sýnt fram viðvarandi fátækt í allt að sex mánuði. Eru slíkar reglur mun sveigjanlegri í öðrum sveitarfélögum. Þá fá lífeyrisþegar hjá Tryggingastofnun greidda sérstaka desemberuppbót en atvinnulausir ekki.

Fram kom í kvöldfréttum RÚV að töluvert er gert upp milli fólks eftir lögheimili hvað bætur og styrki varðar vegna jólanna sem óumdeilanlega er einna erfiðasti tími ársins þegar einstaklingar eða fjölskyldur hafa lítið á milli handanna. Sýna þannig Skagfirðingar mestan rausnarskap og sveigjanleika meðan Reykjavík eins og áður kom fram fer fram á staðfestingu þess efnis að fólk hafi verið sex mánuði hið minnsta undir fátæktarmörkum til að eiga rétt á auka greiðslum.

Þá mega þeir tæplega fimmtán þúsund einstaklingar sem atvinnulausir eru ekki eiga á von á neinu slíku ólíkt launafólki í landinu meðan styrkþegar hjá Tryggingastofnun Ríkisins fái greidda uppbót sem getur numið 30 prósentum af því sem fólk fær greitt. 

Eigi einstaklingar hvorki rétt á lífeyri né atvinnuleysisbótum kemur til kasta framfærslustyrkja og eru þar greinilega nokkur sveitarfélög mannúðlegri en önnur. Er þeim í raun í sjálfsvald sett hvort og hve mikið hvert sveitarfélag styrkir þá allra fátækustu í samfélaginu. Hjá þeim stærstu í Reykjavík, Kópavogi og Akureyri má veita styrk sem nemur 25 prósent framfærslustyrksins vegna jólanna. Eru það um 30 þúsund krónur en sækja þarf það sérstaklega. Í tilfelli höfuðborgarinnar mega þó einstaklingar ekki hafa haft hærri tekjur en 115 þúsund krónur á mánuði síðastliðna sex mánuði.

Akureyrarbær er sá eini sem tekur sérstaklega tillit til barnafjölskyldna fyrir jólin og greiðir 6000 krónur aukalega fyrir hvert barn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is