Bókin selst vel. Nóvember fínn hjá útgefendum en jólasalan sem slík ekki hafin
„Almennt séð eru bókaútgefendur sáttir það sem af er þessari vertíð en jólasalan sem slík er í raun ekki hafin,“ segir Kristján B. Jónasson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda við Eyjuna.
Þó aðstæður almennt í þjóðfélaginu séu langt í frá góðar hugga bókaútgefendur sig við að sagan sýnir að hvort sem hart er á dalnum eða ekki þá heldur bókin alltaf velli hjá Íslendingum.
Var bóksalan í nóvembermánuði góð að sögn Kristjáns og slíkt gefur ákveðin fyrirheit um það sem koma skal. Þar er þó í flestum tilvikum um að ræða að fólk er að kaupa fyrir sjálft sig en jólagjafasalan hins vegar tekur ekki við sér fyrr en nýtt kortatímabil gengur í garð. „Helstu sölubækurnar hingað til eru að seljast í 500 til 1000 eintökum í viku hverri og það er mjög ákjósanlegt og síst verra en verið hefur undanfarin ár. Þá eru komnar nokkrar línur hvað vinsælustu bækurnar varðar og sala þeirra mun aukast jafnt og þétt. Nýjar bækur Arnalds Indriðasons og Yrsu Sigurðardóttur eru að ganga afskaplega vel og þá er ný bók Stieg Larsson að rjúka út. Margar aðrar eru að seljast framar vonum eins og helstu ævisögur.“
Fréttir þess efnis að almennt verð bóka hefði hækkað töluvert birtust í vikunni og vöktu hörð viðbrögð útgefenda og bóksala. Kristján segir að þó rétt sé að almennt verð bóka hafi hækkað þó sé sú hækkun lítil og fólk verði að hafa í huga að á árinum 2001 til 2008 hafi bókaverð staðið í stað samkvæmt úttekt bókaútgefenda. „Á síðasta ári héldu menn að sér höndum enda ástandið þá eins og það var og enginn vissi á hverju var von. Nú eru hins vegar engin tækifæri lengur fyrir útgefendur að taka á sig stóraukinn kostnað við prentun og pappír sem orðið hefur á árinu. Þrátt fyrir þetta er bókin almennt ekki að hækka mikið milli ára.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is