Framtíð Skjás Eins tryggð. Átján þúsund heimili orðið sér úti um áskrift
Átján þúsund íslensk heimili hafa orðið sér úti um áskrift að Skjá Einum en sjónvarpsstöðin sem boðið hefur upp á opna og fría dagskrá frá upphafi varð áskriftarstöð um miðjan síðasta mánuð. Áætlanir forsvarsmanna stöðvarinnar gerðu ráð fyrir að átján til tuttugu þúsund áskriftir tryggðu reksturinn næstu misserin hið minnsta og hefur það takmark nú náðst.
Gengisfall krónunnar á síðasta ári var ástæða þess að gripið var til þess að breyta stöðinni í áskriftarstöð en kostnaður á efni og öll framleiðsla þess efnis sem stöðin framleiðir sjálf hefur margfaldast á skömmum tíma. Þótti fyrirséð að auglýsingatekjur dygðu ekki til að dekka reksturinn og því gripið til þessa ráðs. Er þó áskriftargjald Skjásins töluvert undir því sem gerist hjá samkeppnisaðilum á þessum markaði. Hefur Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri, verið ötul að gagnrýna veru Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Hafi það haft sitt að segja um afkomu einkafyrirtækja á þessum markaði.
Vegna þess hve vel hefur gengið og breytingin fengið jákvæð viðbrögð hefur verið tekin ákvörðun um að verðlauna 20 þúsundasta áskrifandann sérstaklega með verðlaunum. Ennfremur hyggst stöðin styrkja dagskrá sína frekar en orðið er á komandi misserum eins og segir í fréttatilkynningu Skjásins. Ekki er langt síðan Skjárinn hóf samstarf við Morgunblaðið um fréttaútsendingar virka daga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is