Rannsókn lögreglu vegna mansalsmálsins á Suðurnesjum lokið. Einkenni mafíustarfsemi
Uppfært – Dómarar í héraðsdómi Reykjaness hafa úrskurðað alla fimm einstaklingana sem grunaðir eru um aðild að mansalsmálinu á Suðurnesjum í áframhaldandigæsluvarðhalds til 30. desember.
Mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að leiða nítján ára stúlku frá Litháaen í vændi hérlendis. Stúlkan vakti athygli sökum uppþots hennar í þotu Icelandair á leið hingað til lands í október síðastliðnum. Lögregla fylgdist grannt með og handtók að lokum átta einstaklinga. Þrír þeirra voru Íslendingar sem var sleppt eftir gæsluvarðhald en lögregla segir þá enn vera grunaða um aðild.
Hinir fimm sem farið var fram á frekara varðhald yfir eru allir erlendir ríkisborgarar frá Litháen. Rannsókn málsins hefur verið mjög viðamikil samkvæmt upplýsingum frá ríkissaksóknara og undir það taka rannsóknarlögreglumenn hjá embætti lögreglunnar á Suðurnesjum. Þó óskir lögreglu um gæsluvarðhald nú gildi eingöngu vegna þessarar einu stúlku er ekki útilokað að um fleiri fórnarlömb sé að ræða, að því er segir í frétt RÚV.
Þá eru umræddir fimm Litháar ennfremur grunaðir um víðtæka aðra glæpastarfsemi meðal annar ofbeldisglæpi og auðgungarbrot. Hefði starfsemi mannanna hér á landi einkenni mafíustarfsemi.
Þá er enn til rannsóknar hvort þeir tengist stórum húsbruna sem varð á Grundarfirði fyrr á árinu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is