Jóhanna: ESB hótar ekki Íslendingum vegna Icesave. Þorgerður: Ráðherrar margsaga
Evrópusambandið hefur ekki haft uppi hótanir í garð Íslendinga vegna Icesave-málsins.
Þetta fullyrti Jóhanna Sigrðardóttir forsætisráðherra á Alþingi í morgun. Hún var að svara fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, vegna ummæla fjármálaráðherra á Alþingi í gær.
Orðaskiptin eru rakin á fréttavef Morgunblaðsins.
Þorgerður Katrín rifjaði upp að í þingræðu í gær hefði Steingrímur J. SIgfússon fjármálaráðherra sagt að Evrópusambandið hefði haft uppi grímulausar hótanir vegna Icesave-málsins og að endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefði verið í gíslingu vegna málsins.
Jóhanna sagði einhvern misskilning í gangi. Fjármálaráðherra hefði vísað til hótanna Breta á haustdögum 2008, þegar þeir hótuðu að segja upp EES-samningnum. Hún sagðist hins vegar ekki vita til þess að ESB hafi verið með neinar hótanir í þessum málum.
Þorgerður sagði forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar enn og aftur margsaga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is