Föstudagur 04.12.2009 - 07:53 - Ummæli ()

Nýr, fallegur, vampíruhommi í True Blood þættina

Aðdáendur True Blood þáttanna eiga von á glaðningi á næstunni en framleiðendurnir hafa ráðið leikarann Theo Alexander til að leika samkynhneigða vampíru. 

Alexander

Persónan mun heita Talbot og er lýst sem „hrikalega fallegri“ vampíru sem er ástmaður Russel Edgington (Denis O’Hare) en sá er „vampírukonungur“ Missisippi

Talbot mun hafa skarpa kímnigáfu og elska eldamennsku en vampírur þáttanna hafa hingað til gert lítið af því að elda.

Framleiðendurnir hafa einnig ráðið leikarann Grant Bowler úr Ugly Betty til að leika varúlf.

„Bowler mun leika Coot, varúlf, sem er jafnframt grimmur leiðtogi vélhjólaklíku.“

Bowler


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is