Fimmtudagur 10.12.2009 - 11:03 - Ummæli ()

Gaslekinn í Þvottahúsi Ríkis- spítalanna: Mildi að ekki fór verr. 11 á slysadeild

logregla3.jpgGasleki varð í morgun í Þvottahúsi Ríkisspítalanna að Tunguhálsi 2 í Reykjavík. Lak út gas sem er notað til að dauðhreinsa skurðstofuáhöld. Gerðist þetta þegar iðnaðarmenn voru að vinna við lagnir í húsinu.

Í frétt á Vísi  segir að lögregla og slökkvilið hafi verið kallað á staðinn og húsið rýmt. Fóru slökkviliðsmenn inn í reykköfunarbúnaði og gerðu viðeigandi ráðstafanir til að hindra frekari leka. 

Um 11 starfsmenn fóru á slysadeild til aðhlynningar. Hluti þeirra fór á einkabíl en aðrir voru fluttir með sjúkrabifreið. Engin alvarleg veikindi hafa komið í ljós.

Vísir segir að um baneitrað gas hafi verið að ræða og mildi að ekki hafi verr farið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is