Sunnudagur 13.12.2009 - 09:40 - Ummæli ()

Kaupmannahöfn: Mótmæl- endum haldið klukkustundum saman á köldu malbikinu

cop152.jpgKaupmannahafnarlögreglan sleppti í morgun flestum þeirra næstum 1.000 sem handteknir voru í mótmælum í gær í tengslum við loftslagsráðstefnuna.

Að sögn dönsku lögreglunnar verða aðeins 13 áfram í varðhaldi eftir nóttina af þeim 968 sem handteknir voru. Að minnsta kosti þrír verða kærðir fyrir ofbeldi gegn lögreglu, tveir Danir og Frakki.

Lögreglan viðurkennir, samkvæmt frétt danska ríkisútvarpsins, og harmar að allt of margir þeirra sem handteknir voru hafi verið látnir sitja of lengi, eða allt að fimm klukkustundir, á köldu malbikinu, margir með hendur bundnar fyrir aftan bak, áður en þeim var ekið í burtu.

Meðal annars var kveikt í nokkrum bílum og ruslagámum á Nørrebro.

Þúsundir höfðu áður tekið þátt í litríkri fjöldagöngu um sex kílómetra leið frá Kristjánsborgarhöll að Bella Center þar sem ráðstefnan er haldin.

516 samtök frá 67 löndum áttu aðild að göngunni. Meðal ræðumanna að göngunni lokinni voru Mary Robinson fyrrverandi forseti Írlands og Helena Christensen fyrrum ofurfyrirsæta.

Sjá líka myndband á vef Jyllands Posten.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is