Sunnudagur 13.12.2009 - 16:47 - Ummæli ()

Tímamót: Fyrsta örugga rafræna þjóðarkosningin á netinu er hafin. Kosið um Icesave

hakonoggm.jpeg Eyjan hefur ákveðið að efna til þjóðarkosningar um Icesave-málið á netinu frá og með deginum í dag og fram á fimmtudag, 17. desember. Kosningin er hafin. Þetta er fyrsta örugga rafræna atkvæðagreiðslan hér á landi sem allir kjósendur geta tekið þátt í. Um er að ræða kosningu en ekki hefðbundna skoðanakönnun. Notast er við kerfið Íslendingaval þróað af Íslenskri erfðagreiningu. Kerfið tryggir öryggi og nafnleynd. Aðgangskóðar til þátttöku hafa verið sendir sem rafræn skjöl til kjósenda í gegnum heimabanka þeirra og geta þeir nálgast þá nú þegar og kosið. Þeir kjósendur sem hafa ekki stofnað heimabanka geta gert það meðan á kosningu stendur.

Kosningasíða Eyjunnar er hér.

Í þessari fyrstu þjóðarkosningu á netinu, af mörgum sem fyrirhugaðar eru á vegum Eyjunnar, er, sem fyrr segir, spurt um afstöðu kjósenda til Icesave-málsins.  Spurt er: „Vilt þú að Alþingi samþykki eða synji ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga?“ Svarmöguleikar eru þrír: „Alþingi samþykki ríkisábyrgð“, „Alþingi synji ríkisábyrgð“ og „Tek ekki afstöðu.“

Þegar hefur opnað fyrir kosningu og áætlað er að henni verði lokið kl. 16:30 fimmtudaginn 17. desember. Niðurstöður verða kunngerðar strax í kjölfarið.

thjodarkosning1.jpgVið framkvæmd kosningarinnar er stuðst við vefkerfið Íslendingaval sem þróað hefur verið af sérfræðingum Íslenskrar erfðagreiningar. Kerfinu er ætlað að auðvelda uppsetningu á öruggum rafrænum kosningum meðal þjóðarinnar. Kerfið tryggir nafnleynd kjósenda um leið og enginn getur kosið oftar en einu sinni. Þetta er því raunveruleg kosning, en ekki hefðbundin skoðanakönnun. Auk þess er í fyrsta sinn mögulegt fyrir kjósendur að sannreyna að rétt sé farið með atkvæði þeirra í talningu.

„Eyjan er óháður fjölmiðill á netinu sem leggur áherslu á að raddir almennings fái að heyrast. Í því skyni er lesendum á hverjum degi gefinn kostur á að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Hafa tugþúsundir Íslendinga notfært sér þennan vettvang til að lýsa áliti sínu á mönnum og málefnum. Að bjóða upp á reglulegar þjóðarkosningar um stór mál fellur vel að meginstefnu Eyjunnar um að hlusta eigi eftir viðhorfum fólksins í landinu. Það er einnig í takt við ákall margra um beint lýðræði og vaxandi stuðning við að hluti kjósenda geti kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslum,“ segir Guðmundur Magnússon ritstjóri Eyjunnar.

Á myndinni innsigla Guðmundur Magnússon, ritstjóri Eyjunnar, og Hákon Guðbjartsson, framkvæmdastjóri upplýsingasviðs Íslenskrar erfðagreiningar, samstarf um þjóðarkosninguna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is