Mánudagur 14.12.2009 - 18:30 - Ummæli ()

Áskorendur gegn Icesave orðnir 34 þúsund. Fleiri en mótmæltu fjölmiðlafrumvarpinu

icesave22.jpgFjöldi þeirra einstaklinga sem mótmæla Icesave samkomulagi þingsins og óska eftir að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, synji nýjum lögum þess efnis eru nú formlega fleiri en þeir sem mótmæltu fjölmiðlafrumvarpinu árið 2006. Forsetinn beitti synjunarvaldi sínu í því tilfelli í einasta skiptið á forsetaferli sínum.

Um 34 þúsund kosningabærir Íslendingar hafa nú skráð nöfn sín í bækur InDefence hópsins sem að ákallinu standa. Hafa forsvarsmenn InDefence þó þurft að henda út fjölda undirskrifta, nú síðast á föstudaginn var, þegar á skömmum tíma bárust yfir hundrað ógildar undirskriftir. Vakti athygli að hópurinn rakti hluta þessara undirskrifta til tölva í Stjórnarráðinu, á Fréttablaðinu og Ríkisútvarpinu auk fleiri staða.

Áskorun InDefence hópsins er svohljóðandi:

Ég skora á forseta Íslands, herra Ólaf Ragnar Grímsson, að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar. Ég tel að það sé sanngjörn krafa að sú efnahagslega byrði sem ríkisábyrgðin leggur á íslenskan almenning og framtíðarkynslóðir þessa lands, verði borin undir íslensku þjóðina í þjóðaratkvæðisgreiðslu.

Vefur samtakanna hér.

Þess má ennfremur geta að Eyjan stendur fyrir Þjóðarkosningu þessa stundina um Icesave. Allir þeir sem aðgang hafa að heimabanka geta tekið þar þátt á öryggan hátt. Sjá nánar um það hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is