Mánudagur 14.12.2009 - 15:09 - Ummæli ()

Sendinefnd AGS: Ánægðir með þróun mála. Kreppan minni og staðan betri en búist var við

imf_international_monetary_fund_h_q.jpg Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur nú haldið af landi brott eftir dvöl hér á landi eftir að kynnt sér þann árangur sem náðst hefur hingað til vegna framkvæmdaáætlunar sjóðsins og íslenskra stjórnvalda. Er það mat sendinefndarinnar að vel hafi tekist til. Kreppan sé minni en spáð var og sama megi segja um atvinnuleysi.

Sendinefndin heldur nú heim til Bandaríkjanna þar sem skýrsla verður lögð fyrir sjóðinn um gang mála hér. Sú skýrsla liggur til grundvallar ákvörðun um afgreiðslu á næsta áfanga í fjármögnun sjóðsins en búast má við að ákvörðun um framhaldið verði ljós í lok janúar.

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra kveðst einnig ánægður með árangur heimsóknarinnar. „Það er sameiginleg niðurstaða AGS og stjórnvalda að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar hafi leitt til þess að efnahagssamdráttur og atvinnuleysi er minna en gert var ráð fyrir í upphafi.  Ástæða er einnig til að fagna mikilvægum áfanga sem náðst hefur við endurreisn bankakerfisins.  Við vinnum nú ötullega að því að ná tökum á ríkisfjármálunum og leggjum þar með traustari grunn að viðreisn efnahagskerfisins.  Framundan er vissulega erfiður hjalli en allt bendir til þess að fyrir lok næsta árs verði viðsnúningi náð.“

Yfirlýsing sjóðsins hér.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is