Samtöl um Landsdóm innan þröngs hóps stjórnmálaforingja
Innan þröngs hóps í forystusveit stjórnmálaflokkanna hefur að undanförnu verið rætt um þá stöðu sem líklegt er að komi upp á Alþingi þegar rannsóknarnefnd þingsins um bankahrunið skilar skýrslu sinni í lok janúar. Álitið er að í skýrslunni verði svo fast að orði kveðið um vanrækslu nokkurra ráðherra í fyrrverandi ríkisstjórn að gæta þjóðarhagsmuna í aðdraganda hrunsins að tillaga muni koma fram í þinginu um að einn eða fleiri þeirra sæti ákæru fyrir Landsdómi.
Ef þingmenn Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar bera ekki fram tillögu um þetta þykir víst að þingmenn Hreyfingarinnar og Vinstri grænna muni gera það. Talið er pólitískt óhugsandi fyrir þingmenn stóru flokkanna að leggjast gegn slíkri tillögu, en einhverjir þeirra kynnu að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um hana.
Landsdómur er sérdómstól sem aldrei hefur verið kallaður saman. Hann fer með og dæmir mál sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra og starfar eftir lögum nr. 3/1963. Dómurinn er skipaður 15 dómendum, þar á meðal fimm hæstaréttardómurum, dómstjóranum í Reykjavík og prófessornum í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands.
Ljóst er að það yrði þungbær ákvörðun fyrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar að þurfa að taka afstöðu til þingsályktunar sem fæli í sér ákæru á hendur fyrrum ráðherrum sínum.
Eins og Eyjan greindi frá fyrr í vikunni er rannsóknarnefndin nú að senda ýmsum mönnum, sem nefndir verða í skýrslunni, þá kafla þar sem að þætti þeirra og ábyrgð á hruninu er vikið. Fá viðkomandi tveggja vikna frest til að skila skriflegum andmælum. Þau verða birt sem fylgiskjöl með skýrslunni og gætu í einhverjum tilvikum haft áhrif á umsögn nefndarinnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is