Fimmtudagur 17.12.2009 - 17:18 - Ummæli ()

Þjóðarkosning Eyjunnar um Icesave: Yfirgnæfandi meirihluti vill að Alþingi synji ríkisábyrgð

kosningalogo.jpgÞjóðarkosningu Eyjunnar um Icesave-málið, sem hófst á sunnudag, lauk kl. 16.30 í dag. Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda sem greiddi atkvæði vildi að Alþingi synjaði ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga.

Samtals kusu 7454. Atkvæði féllu þannig að 5188 (69,6%) vildu að Alþingi synjaði ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu, 2144 (28,8%) vildu að Alþingi samþykkti ríkisábyrgð og 122 (1,6%) tóku ekki afstöðu.

Spurningin, sem lögð var fyrir kjósendur, var: „Vilt þú að Alþingi samþykki eða synji ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu við Breta og Hollendinga?“ Svarmöguleikar voru þrír: „Alþingi samþykki ríkisábyrgð“, „Alþingi synji ríkisábyrgð“ og „Tek ekki afstöðu.“

mynd7.jpg

Kosningin markar ákveðin tímamót á Íslandi. Þetta var fyrsta örugga rafræna atkvæðagreiðslan sem allir kjósendur gátu tekið þátt í. Notast var við kerfið Íslendingaval sem er þróað af Íslenskri erfðagreiningu. Kerfið tryggir öryggi og nafnleynd. Aðgangskóðar til þátttöku voru sendir sem rafræn skjöl til kjósenda í gegnum heimabanka þeirra og kjósendur sem ekki voru með heimabanka gátu stofnað hann meðan á kosningu stóð.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is