Umhverfisráðherra: Tiltölulega bjartsýn að loftslagsráðstefna S.Þ skili einhverjum árangri
„Þó það sé kannski borin von að hér komi fram lagalega bindandi samkomulag eins og að var stefnt þá er ég bjartsýn á að einhvers konar sameiginlega viljayfirlýsing komi fram áður en fundinum lýkur,“ segir Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, við Eyjuna en hún er stödd á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem lýkur formlega á morgun.
Flestir fréttaskýrendur eru sammála um að háleit markmið ráðstefnunnar muni ekki nást eins og staðan er nú. Hafa orðið töluverðar deilur þjóða á milli nú síðustu daga og saka þróunarríki iðnríki um að ýta sér út í horn. Þá þykir afstaða Kína og Bandaríkjanna ekki sérlega liðleg á ráðstefnunni.
Svandís segist ekki vera úrkula vonar að úr rætist þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. „Það má ekki gleyma því að nú hópast hingað mesta þungavigtarfólkið og hér verða margir háttsettustu menn heims á morgun. Slíkt veldur miklum pólitískum þrýstingi og það er ekki ólíklegt að það hafi jákvæð áhrif á fundargesti.“
Hún er þó ánægð almennt að ríki heims hafi viðurkennt að ógn steðji að jörðinni vegna loftslagsbreytinga og bendir ennfremur á að þótt ekki náist til lands í málum nú sé Kyoto bókunin í gildi til loka árs 2012 og menn hafi því enn tíma til að koma sér saman um næstu skref í loftslagsmálum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is