Föstudagur 18.12.2009 - 15:19 - Ummæli ()

Engin einustu gögn sem sýna að peningaþvottur hafi verið stundaður hér síðustu árin

a13image.jpgLögregla hefur alls engin gögn sem gefa vísbendingar um að hér á landi hafi farið fram umtalsverður peningaþvottur á síðustu árum en orðrómur þess efnis er langlífur. Hvorki efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra né Fjármálaeftirlitið hefur fengið nokkrar sannfærandi upplýsingar um slíkt samkvæmt heimildum Eyjunnar.

Sögusagnir um slíkt hafa lengi gengið milli manna bæði hérlendis og erlendis og gengið svo langt að stöku erlendir aðilar hafa fullyrt að Ísland hefði verið nokkurs konar miðstöð fjármálaþvættis rússneskra aðila um langt skeið. Hafa nokkrir erlendir blaðamenn einnig leitt líkur að því að svo hafi verið.

Eigi það við rök að styðjast finnast þess engin merki í rannsóknargögnum þeim er efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur farið yfir síðasta árið. Sama gildir um rannsóknir FME hingað til.

Þó er fráleitt hægt að útiloka að slíkt hafi átt sér stað einfaldlega vegna þess að reglur um peningaþvætti kveða á um að bankar hafi sjálfir frumkvæði að því að láta kanna hugsanlegt peningaþvætti og ber að senda efnahagsbrotadeild tilkynningar um allar peningafærslur sem vafasamar þykja. Hafa lög sem sagt gengið út frá því að bráðheiðarlegt starfsfólk hafi starfað í bönkum landsins en ástæða er til að draga það í efa með tilliti til fjölda þeirra bankastarfsmanna sem liggja undir grun um ýmiss konar misferli síðustu árin.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is