Föstudagur 18.12.2009 - 10:04 - Ummæli ()

Fullyrt að lykilmaður í Samfylk- ingunni tengist fyrirhuguðum fríðindum Verne Holding

vilhjalmur-thorsteinsson-cc.jpgLykilmaður í Samfylkinginni og einhver mikilvægasti tengiliður flokksins við atvinnulífið, Vilhjálmur Þorsteinsson, er helsti viðskiptafélagi Björgólfs Thors Björgólfssonar í fyrirhuguðu gagnaveri Verne Holding sem Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra vill að fái stórfelld skattafríðindi.

Þetta er fullyrt í frétt á AMX-vefnum í dag.

Heitar umræður urðu um fríðindafrumvarp iðnaðarráðherra gagnvart Verne Holding á Alþingi í gær. Lét þá Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyfingarinnar, þau orð falla hvort ekki væri eðlilegt að Björgólfur Thor, sem á 40% hlut í Verne, skilaði fyrst “þýfinu sem hvarf af Icesave-reikningunum”, eins og hún komst að orði, áður en hann fengi slíka fyrirgreiðslu ríkisins.

Katrín Júlíusdóttir sagði að sér þætti ógeðfellt hvernig reynt væri að gera þetta mál tortryggilegt.  Um væri að ræða mikið hagsmunamál fyrir Suðurnesjamenn og alla landsmenn.

Í frétt AMX segir  m.a.:

Fyrir þingi liggur frumvarp frá Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra um sérstök skattafríðindi fyrir gagnaver Verne Holding á Suðurnesjum. Mest hefur verið fjallað um aðkomu Björgólfs Thors Björgólfssonar að fyrirtækinu og er hún greinilega afar umdeild vegna viðskiptasögu hans. Minna hefur hins vegar verið fjallað um þátt Vilhjálms Þorsteinssonar, viðskiptafélaga Björgólfs í þessu verkefni og fleirum, svo sem CCP og Straumi. Hún er þó ekki síður athyglisverð í ljósi þess að Vilhjálmur hefur verið lykilmaður í innra starfi Samfylkingarinnar um árabil. Hann hefur meðal annars verið mikilvirkur í málefnastarfinu og átt þátt í að skrifa öll helstu stefnumótandi plögg flokksins um atvinnu- og efnahagsmál. Þá hefur hann verið einhver mikilvægasti tengiliður flokksins við atvinnulífið.

Vilhjálmur Þorsteinsson er einnig viðskiptafélagi Björgólfs Thors í tölvuleikjafyrirtækinu CCP. Hann keypti nýlega 10% hlut í fjárfestingafyrirtækinu Auður Capital.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is