Rannsóknin ekki komin til forstjóra FME
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sendi í morgun frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Vegna rangfærslna í frétt Fréttablaðsins um rannsókn FME á máli Baldurs Guðlaugssonar er rétt að taka fram eftirfarandi:
“Þegar undirritaður lét af störfum forstjóra FME var rannsókn á máli Baldurs Guðlaugssonar ekki komin á það stig að vera á borði forstjóra. Fundargerðir svonefnds samráðshóps voru fyrirliggjandi í skjalavörslu FME og það kunnugt viðeigandi starfsmönnum. Jafnframt benti undirritaður rannsakendum á að kynna sér fundargerðir samráðshópsins. Það er annarra að svara fyrir framkvæmd og ákvarðanatöku við rannsókn sem átti sér stað í tæpa 4 mánuði eftir að ég vék úr starfi, og lauk þá án frekari aðgerða”.
Jónas Fr. Jónsson
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is