Föstudagur 18.12.2009 - 14:48 - Ummæli ()

RuPaul bregður á leik sem Obama hjónin og Sara Palin

Ameríska dragdrottningin RuPaul kann sitthvað fyrir sér í eftirhermumálum…

Hún bregður sér auðveldlega í allra kvikinda líki og ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur.

rupalinopenpost.jpg

Til dæmis virkar hún þrælvel sem bæði Michelle og Barack Obama en jafnvel enn betur sem repúblikaninn Sara Palin.

RuPaul klæddi sig sem Söru Palin í tilefni af annari þáttaröð raunveruleikaþáttarins Drag Race en þar keppa strákar í því hver er flottasta dragdrottningin.

rupaulobamashotness1.jpg

Drag Race er langvinsælasta þáttaröðin sem hefur verið sýnd á sjónvarpsstöðinni Logo en hún var stofnuð fyrir fjórum árum og einbeitir sér að útsendingum á efni fyrir sam -og tvíkynhneigða.

Logo er í eigu Viacom sem er fyrirtækið á bak við MTV og VH1.

[youtube=youtube.com/watch?v=51Q8V2VFkns]


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is