Seðlabankinn og fjármálaráðu- neytið kanna hvort ESB vilji lána Íslendingum fé
Fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn eru að kanna hvort Evrópusambandið vilji lána Íslendingum fé í tengslum við umsókn Íslands um aðid að sambandinu.
Þetta er upplýst í svari Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Önnu Margrétar Guðjónsdóttur alþingismanns á Alþingi.
Þingmaðurinn spurði hvort fjármálaráðherra hefði látið kanna hvort mögulegt væri að fá lán hjá fjármálastofnunum Evrópusambandsins, svo sem Fjárfestingarbanka Evrópu, þegar formlegri stöðu aðildarviðræðuríkis gagnvart sambandinu væri náð og ef svo væri, hvaða kostir og kjör byðust á slíku láni.
Svar fjármálaráðherra hljóðar svo:
Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) veitir eingöngu lán til fjárfestingarverkefna og hefur bankinn lánað til fjölmargra verkefna hér á landi á sl. árum. Meðal lántakenda eru Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja. Nefna má að lánasamningur að fjárhæð 170 milljónir evra var undirritaður á milli EIB og Orkuveitu Reykjavíkur í nóvember sl. Sérstakt samkomulag er milli EFTA-ríkjanna og EIB um lánaramma fyrir lánveitingar til þeirra. Sá lánarammi var nýlega endurnýjaður og gildir til ársloka 2013 og svara ætlaðar lánveitingar til 3,3 milljarða evra fyrir EFTA-ríkin öll. Ekki hefur komið til álita að leita eftir almennri lánafyrirgreiðslu frá EIB gagnvart ríkissjóði, en lánveitingar bankans eru ýmist verkefnabundnar eða felast í lánalínum til banka eða annarra fjármálastofnana.
Evrópusambandið hefur boðið nokkrum ríkjum sem sótt hafa um aðild að sambandinu og öðrum nágrannaríkjum sérstaka lánafyrirgreiðslu sem alla jafna er veitt í tengslum við framkvæmd sérstakra efnahagsáætlana (e. macro-financial assistance). Lánin hafa einkum verið veitt til ríkja í Austur-Evrópu, landa við Miðjarðarhaf og ríkja á Balkanskaga. Rætt hefur verið um að slík lánafyrirgreiðsla standi íslenskum stjórnvöldum til boða og er það mál í athugun í fjármálaráðuneyti og Seðlabanka Íslands.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is