Selfoss og Garðabær töluverðir útgerðarbæir ef marka má plögg Fiskistofu
Berist talið að útgerðarbæjum þessa lands dettur sennilega flestum í hug bæir á borð við Húsavík, Höfn, Vestmannaeyjar, Ísafjörð og Reykjanesbæ auk fleiri slíkra. En sennilega eru þeir vandfundnir og líklega litnir hornauga sem setja myndu Selfoss eða Garðabæ á lista með helstu útgerðarbæjum landsins. Báðir staðirnir finnast þó á lista Fiskistofu yfir heimahafnir sem fengið hafa aflaheimildir í þorskígildistonnum.
Kemur þetta fram í skjali Fiskistofu sem Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, lagði fram á þingi vegna fyrirspurnar Sigmundar Ernis Rúnarssonar, þingmanns Samfylkingar varðandi kvótaúthlutanir til byggðalaga.
Vekur þetta nokkra furðu enda hvorki vitað um hafnir né bryggjur á umræddum stöðum og eru þeir reyndar fleiri bæirnir sem setja má athugasemd við.
Eyjan forvitnaðist um málið hjá Fiskistofu og vakti þetta nokkra furðu þar á bæ líka. Ástæðan er þó tiltölulega einföld; heimabær útgerðar getur verið heimabær útgerðarmanns sem í umræddum tilvikum er þá búsettur í Garðabæ eða á Selfossi. Ekki er um miklar aflaheimildir að ræða sem þessir ágætur bæir hafa yfir að ráða samkvæmt skjalinu sem sjá má í heild sinni hér.
*Mynd Örn Óskarsson
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is