Svandís: Samkomulagið í Kaupmannahöfn vonbrigði, enda ekki lagalega bindandi
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir samkomulagið sem náðist á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í gærkvöld að vissu leyti vera vonbrigði, enda hafi upphaflega verið vonast eftir lagalega bindandi samkomulagi.
„Þó ítrekar samkomulagið að alvara sé á bakvið ráðstefnuna og að þjóðir heimsins vilja ekki fara frá Kaupmannahöfn án þess að eitthvað sé fast í hendi,“ segir Svandís í samtali við Morgunblaðið.
Enn er þó nokkuð óljóst í hverju samkomulagið felst, bendir Svandís á, og eins hvernig aðgerðir til að bregðast við hlýnun jarðar verða útfærðar.
Samkvæmt Reuters fréttastofunni markar samkomulagið skref í áttina að því takmarki að draga úr hnatthlýnun, en það er þó ekki talið duga til þess að draga úr þeirri ógn sem loftslagsbreytingar eru.
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, lýsti því yfir í gær að Bandaríkin væru tilbúin til að minnka losun um 17% fram til ársins 2020 miðað við magn ársins 2005, en Evrópusambandið hefur talið 20% vera lágmarkstakmark.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is