Þriðjudagur 22.12.2009 - 11:41 - Ummæli ()

Svínaflensan: Hundrað þúsund Íslendingar bólusettir. Einn maður enn á gjörgæslu

lsh_mynd.jpgHundrað þúsund Íslendingar hafa nú verið bólusettir gegn svínaflensunni og töluverður fjöldi bíður enn bólusetningar þó svo að flensan hafi ekki gert vart við sig að undanförnu. Alls hafa um 200 Íslendingar leitað sér aðstoðar vegna veikinda tengdum svínaflensu, tveir einstaklingar hafa látist og einn er enn á gjörgæslu.

Rúm vika er síðan nýr skammtur af bóluefni barst til landsins en Íslendingar eins og einstaklingar annarra þjóða hafa þurft að bíða töluverðan tíma eftir nægum birgðum. Þrátt fyrir það virðist líftími flensunnar liðinn og ekki hefur orðið vart nýrra tilfella á nokkurn tíma. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, segir við Eyjuna að vert sé að hafa í huga að lyfjameðferðir hafi slegið á einkenni margra sem annars hefðu mögulega sýkst alvarlegar.

Segir Haraldur einnig að ekki megi gera lítið úr því að með bólusetningu núna, jafnvel þó hættan sé liðin hjá í bili, geti vel verið að komið sé í veg fyrir enn alvarlegri bylgju hvenær sem er. Gengur Haraldur svo langt að segja á Íslendingar hafi sögulegt tækifæri til að koma í veg fyrir seinni bylgju sjúkdómsins með bólusetningu nú.

Fyrir liggur að beinn kostnaður vegna kaupa á bóluefni hingað til lands er á milli 3 til 400 milljónir króna. Ekki liggur fyrir hver annar kostnaður er að svo stöddu en hann hleypur líka á hundruðum milljóna króna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is