Þriðjudagur 22.12.2009 - 17:54 - Ummæli ()

Tóbak að verða munaðarvara. Kostnaður á algengum pakka slagar í þúsund krónur

smoking_rich_poor.jpgMeð nýjum sköttum og vörugjöldum ríkisins um áramótin hækkar verð á tóbaki ásamt velflestu öðru í landinu en ráð er fyrir gert að verð á stökum pakka af algengum sígarettum hækki um 7,53 prósent frá heildverslun ÁTVR.

Álagning á tóbaki er frjáls en sé tekið mið af algengu útsöluverði mun hver pakki eftir áramótin slaga langleiðina í þúsund krónur. Vindlar og neftóbak hækka um svipaða prósentu.

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins selur hvert karton af algengum sígarettum í heildsölu nú á 6.506 krónur en sama karton hækkar í 6.996 eftir áramótin. 

Útsöluverð á tóbaki er æði misjafnt milli verslana og söluturna en algengt útsöluverð á einum pakka þessi dægrin er milli 830 og 870 krónur. Telja nokkrir verslunareigendur sem Eyjan hefur rætt við eðlilegt að ætla að við bætist um hundrað krónur á hvern pakka og þannig gætu verð á slíku verið milli 930 og 970 króna eftir áramótin.

Öllu meira en það þarf að greiða fyrir sígarettupakkann á börum á nýju ári. Einn veitingamaður í miðbæ Reykjavíkur sem rætt var við bjóst við að selja pakka af algengu tóbaki á 1700 krónur frá og með miðnætti á Gamlárskvöld.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is