Jón Ólafsson stefnir ríkinu. Segist hafa flutt til Bretlands árið 1998
Jón Ólafsson hefur stefnt ríkisskattstjóra og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisins vegna sex ára gamals úrskurðar um að Jón hafi átt heima á Íslandi og borið að greiða skatt hérlendis. Deilan snýst um hvort Jón hafi átt heima á Íslandi eða í Bretlandi frá árinu 1998.
Fréttablaðið segir frá þessu í dag.
Ríkisskattstjóri úrskurðaði árið 2003 að Jón hefði frá árinu 1998 átt svokallaða heimilisfesti á Íslandi og að hann bæri því fulla skattskyldu hérlendis. Jón hefur nú stefnt ríkisskattstjóra og fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins vegna þessa úrskurðar.
„Ég flutti úr landi í september 1998 með konu og börn. Þau fóru í skóla þar, við festum kaup á húsi og ákváðum að búa í Englandi. Ég vil bara fá viðurkenningu á að svo hafi raunverulega verið,“ segir Jón við Fréttablaðið.
Í kjölfar úrskurðar ríkisskattstjóra hefur Jóni verið gert að greiða á fjórða hundrað milljónir í skatta hérlendis og sótt hefur verið að honum fyrir dómi vegna meintra skattsvika. Því máli hefur verið vísað frá vegna formgalla.
Vinni Jón málið „þá er ljóst að skattayfirvöld höfðu ekki lögsögu yfir mér þegar þau fóru í mig,“ fullyrðir hann. Með því væri sá möguleiki fyrir hendi að fá ákvörðunum sem byggja á úrskurði ríkissaksóknara hnekkt.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is