Árið 2011 verður sérstaklega þungt. Búist við 270 milljarða endurgreiðslum á lánum
Árið 2011 verður gríðarlega erfitt fyrir ríkissjóð eins og sjá má á tölum sem Seðlabanki Íslands kynnti viðskiptanefnd Alþingis rétt fyrir jól. Það ár mun endurgreiðsla erlendra lána nema rúmum 1.467 milljónum evra, eða 267 milljörðum króna á núverandi gengi, og stendur árið upp úr í samanburði við önnur ár, sem verða ríkissjóði þó einnig erfið.
Morgunblaðið segir frá þessu í dag og birtir meðfylgjandi línurit.
Steingrímur: Icesave minni hlutur en flestir halda
Á því má sjá endurgreiðslur næstu ára, og eins greiðslur vegna Icesave sem hlutfall af heildarendurgreiðslum erlendra lána. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir umræddar tölur sýna að skuldir vegna Icesave sem hlutfall af erlendum heildarskuldum þjóðarbúsins séu töluvert minni en margir virðist hafa talið.
Af tölunum sést að gert er ráð fyrir að árið 2021 hafi ríkissjóði tekist að greiða niður öll þau erlendu lán sem á honum hvíla í dag og að ekki verði tekin nein ný erlend lán á tímabilinu sem tölurnar taka til.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is