Mánudagur 28.12.2009 - 04:41 - Ummæli ()

Komið að ögurstund um Icesave. Stefnt að atkvæða- greiðslu á Alþingi fyrir áramót

icesave2.jpgAlþingi kemur saman á ný í dag, en slíkt er heldur óvenjulegt á milli jóla og nýárs.  Tilgangur þessa sérstaka þingfundar er að heyja þriðju og síðustu umræðu um  Icesave-málið, einsog það hefur legið fyrir þinginu undanfarnar vikur. Mikil spenna ríkir fyrir þessa úrslitastund málsins, enda er stefnt að atkvæðagreiðslu fyrir áramót þó enn sé alls óvíst hvort málið hjóti meirihlutafylgis á Alþingi.

Ræðutími hvers þingmanns er að þessu sinni takmarkaður og því ætti að vera hægt að ljúka þriðju umræðu og atkvæðagreiðslu í vikunni. Búist er við atkvæðagreiðslu á morgun, en það gæti þó breyst.

Tveir þingmenn í lykilstöðu

Afgreiðsla Icesave stóð mjög tæpt í annarri umræðu og því er alls óvíst hvort málið hljóti meirihlutafylgi við þriðju og síðustu umræðu. Fullvíst má telja að  Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum, greiði atkvæði gegn málinu og þá er talin óvissa um afstöðu flokksbróður þeirra, Ásmundar Einars Daðasonar. Greiði hann einnig atkvæði gegn málinu er líklegt að það falli. Mjög hart er lagt að Ásmundi Einari þessa dagana að greiða atkvæði gegn Icesave, ekki síst frá félögum hans í Heimssýn en Ásmundur Einar tók nýverið við formennsku í samtökunum.

En jafnvel þótt Ásmundur Einar segi nei við Icesave er uppi sá möguleiki að óháði þingmaðurinn Þráinn Bertelssonkomi stjórninni til bjargar og tryggi afgreiðslu málsins.

Þannig má segja að afdrif Icesave séu í höndum þessara tveggja þingmanna. Auk þess hafa stjórnmálafræðingar bent á að líf ríkisstjórnarinnar standi og felli með þessari afgreiðslu og því bendir allt til þess að þessir sömu tveir þingmenn hafi líf stjórnarinnar í hendi sér.

„Þetta hefur bara sinn gang. Hver og einn verður að gera það upp við sig hvernig hann greiðir atkvæði,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður VG við Fréttablaðiðið í dag, spurður hvort hann hafi gert liðskönnun í sínum röðum vegna Icesave-málsins.

Hvað gerir forsetinn?

Annar óvissuþáttur um afdrif Icesve og jafnframt um líf ríkisstjórnarinnar er staðfesting forseta Íslands. Hann undirritaði fyrri lögin síðsumars, en vísaði þá sérstaklega til fyrirvara Alþingis í yfirlýsingu, sömu fyrirvara og Bretar og Hollendingar vísuðu frá sér. Í því ljósi hefur verið bent á að forsetinn þurfi að sækja sér ný rök, ætli hann hann að staðfesta lögin.

Tæplega 35 þúsund manns hafa skorað á forseta á Indefence.is, að synja lögunum staðfestingar og vísa málinu þar með til þjóðarinnar. Ólafur Ragnar Grímsson hefur einu sinni beitt því valdi, er hann synjaði fjölmiðlalögunum staðfestingar árið 2004, meðal annars með þeirri röksemd að gjá hefði skapast milli þings og þjóðar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is