Mánudagur 28.12.2009 - 18:54 - Ummæli ()

Níu áramótabrennur í Reykjavík þessi áramótin. Fimm þeirra í stærri kantinum

aramotabrennur-08-09.jpgAlls verður kveikt undir níu áramótabrennum þetta árið í Reykjavíkurborg sem er svipaður fjöldi brenna og verið hefur undanfarin ár. Verður kveikt í þeim öllum klukkan 21:30 á gamlárskvöld. Geti allir þeir er hönd vilja leggja á plóg lagt efni í brennurnar frá og með morgundeginum.

Eru brennur þessa árs á sömu stöðum og verið hefur í borginni. Stórar brennur verða við Ægissíðuna, á Geirsnefi, við Rauðavatn og við gömlu öskuhaugana í Gufunesi.

Smærri brennur verða svo haldnar í Skerjafirði, við Suðurhlíð neðan við Fossvogskirkjugarð, til móts við Valbjarnarvöll í Laugardal og við Suðurfell í Breiðholti.

Óheimilt verður að vera með skotelda við brennurnar og verður strangt eftirlit með að það bann sé virt. Stjörnuljós er þó öllum heimilt að hafa og leika sér með.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is