Þingfundi um Icesave frestað vegna nýrra skjala. Lét Svavar leyna gögnum fyrir Össuri?
Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, frestaði rétt fyrir miðnætti fundi Alþingis um Icesave-málið eftir að hafa fundað með formönnum stjórnmálaflokkanna í ljósi nýrra skjala um málið sem fram komu í kvöld.
Uppnám varð á þingfundinum í kvöld þegar í ljós kom að fjárlaganefnd þingsins voru að berast áður ókunn skjöl um Icesave-málið frá bresku lögmannsstofunni Mishcon de Reya. Í bréfi bresku lögmannanna kom fram að í vor hefði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fengið sérstaka kynningu á skýrslu sem Mishcon de Reya tók þá saman. Greint var frá því að úr þeirri kynningu hefðu verið fjarlægðar upplýsingar sem Svavar Gestsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, hafi ekki viljað að fylgdu með í skjölunum til utanríkisráðherra. Um var að ræða það mat lögmannsstofunnar að málshöfðun á hendur breska fjármálaeftirlitinu gæti styrkt stöðu Íslands í viðræðum um Icesave-málið.
Össur Skarphéðinsson kvaðst ekki kannast við fundinn sem hann á að hafa setið með bresku lögmönnunum. Steingrímur J. Sigfússon kvaðst ekki trúa því að Svavar Gestsson hefði vísvitandi leynt utanríkisráðherra gögnum. „Að þrautreyndur embættismaður og sendiherra sem væntanlega kann þá grundvallarreglu að ráðherra eigi að sjá allt sem skiptir máli hafi farið að óska eftir slíku. Ég á afar erfitt með að trúa því,“ sagði Steingrímur.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar sögðu að ekki væri hægt að ljúka umræðum um Icesave-málið fyrr en alþingismenn hefðu fengið næði til að kynna sér öll hin nýju gögn.
Til stóð að ljúka Icesave-umræðunni á morgun og greiða síðan atkvæði um frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu. Eftir atburði kvöldsins ríkir fullkomin óvissa um það hvort þetta gengur eftir.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is