Mánudagur 04.01.2010 - 16:54 - Ummæli ()

Sjómenn hyggjast setja upp sína eigin nefnd og gagnagrunn til höfuðs Hafró

100_2228.jpgAllnokkrir aðilar í sjávarútvegi hyggjast á næstunni kom á fót svokallaðri aflaráðgjafarnefnd og er vinna vegna þessa hafin fyrir nokkru. Samkvæmt upplýsingum Eyjunnar á slík nefnd að vera skipuð sjómönnum sjálfum og á að veita sjávarútvegsráðherra ráðgefandi upplýsingar reglulega gegnum sérstakan gagnagrunn hennar. Margir sjómenn líta svo á að nefndin sé sett til höfuðs ráðgjöf Hafrannsóknarnefnd sem margir í greininni eru ósáttir við ár eftir ár.

Er það Landssamband smábátaeigenda sem hefur haft frumkvæði um stofnun nefndarinnar og hefur nú þegar verið boðað til fundar síðar í mánuðinum til að yfirfara reglur slíkrar nefndar. Eftir það skal kjósa nefndarmenn og setja á stofn gagnagrunninn en sá verður stútfullur fljótt enda skal taka þar saman upplýsingar úr aflabókum skipa og báta auk þeirrar áralöngu reynslu sem sjómenn búa yfir.

Hafa ýmis samtök innan sjávarútvegsins sýnt þáttöku áhuga nema Landssamband íslenskra útvegsmanna sem enn hefur í engu svarað boðum. Á Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, sem fyrir öllu fer þó alveg von á að LÍÚ sláist í hópinn síðar meir. Segir hann það ekki hugmyndina að ráðgjöf sjómanna sé stefnt til höfuðs Hafró heldur eigi sjávarútvegsráðherra að fá viðbótarupplýsingar frá þeim er miðin stunda og hafa reynslu og þekkingu sem oft skorti hjá fræðimönnum hjá hinni opinberu Hafrannsóknarstofnun. Þannig geti ráðherra tekið betri ákvarðanir en ella og mögulega í betri sátt við sjómenn.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is