Tæplega 30 þúsund kröfum lýst í Kaupþing banka. Hæsta krafan 200 milljarðar
Slitastjórn Kaupþings banka áætlar að tæplega 30 þúsund kröfur hafi borist í bankann en sex mánaða frestur til þess rann út nú um áramótin. Ekki hefur þó enn tekist að skrá nema 23 þúsund þeirra. Hæsta krafan sem borist hefur enn sem komið er nemur 200 milljörðum króna en öllu hógværari kröfur berast líka. Þannig stendur lægsta krafan í búið í 250 krónum.
Gerir slitastjórn ráð fyrir að klára skráningu að fullu um miðjan mánuðinn og í kjölfarið verður kröfuhafaskráin gerð aðgengileg kröfuhöfum. Þá skal halda fund með kröfuhöfum þann 29. janúar þar sem afstaða slitastjórnar til lýstra krafna verður til umræðu.
Langflestar kröfurnar sem borist hafa koma frá Þýskalandi en kröfur frá 111 löndum heims eru á borði slitastjórnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is