Miðvikudagur 06.01.2010 - 16:01 - Ummæli ()

Fullyrt að forsetinn hafi hundsað beiðni um fund með forsætisráðherra

johanna-stefnuraeda-040209.jpgFullyrt er að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, hafi hundsað bréflega ósk Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, um fund vegna ákvörðunar Ólafs í Icesave deilunni. Hundsaði Ólafur ósk Jóhönnu og er það talið einsdæmi í sögu stjórnsýslu hér á landi.

Frá þessu skýrir Pressan sem hefur þetta eftir öruggum heimildum.

Ósk forsætisráðherra um sérstakan fund vegna málsins barst forsetanum á mánudaginn en daginn áður hafði Jóhanna ásamt öðrum ráðherrum og Seðlabankastjóra átt fundi með Ólafi vegna sama máls. Bréfi Jóhönnu fylgdi greinargerð um afleiðingar synjunar laganna um Icesave. Var það meðal annars bent á að Bretar og Hollendingar hefðu mikið um það að segja hvort ríkisábyrgðin um Icesave færi yfirleitt til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem þjóðirnar gætu litið svo á að frestir væru útrunnir og þannig væri fallið frá samningum sem lögin taka til. Mætti þess vegna jafnvel líta svo á að þjóðirnar tvær hefðu mikla hagsmuni af því að Íslendingar höfnuðu lögum þessum.

Sinnti Ólafur Ragnar erindi forsætisráðherra í engu og var Jóhanna því engu nær um ákvörðun forseta fyrr en rétt fyrir opinbert ávarp hans skömmu fyrir hádegi í gær. Eru þess fá, ef nokkur, dæmi hér á landi áður að forseti hundsi beiðni forsætisráðherra með þessum hætti. Þykir það sérstaklega undarlegt með tilliti til að samstarf þeirra hingað til hefur verið gott.

Þetta hefur ekki fengist staðfest hjá forsætisráðuneytinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is