Miðvikudagur 06.01.2010 - 18:19
- Ummæli
()
Misvísandi kannanir. Meirihluti ýmist með eða á móti synjun forsetans á Icesave-lögunum
Meirihluti landsmanna er andvígur ákvörðun forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, að synja Icesave-lögunum staðfestingar. Þetta er niðurstaða Gallup-könnunar sem Ríkisútvarpið sagði frá í kvöldfréttum.
Niðurstaða Gallup stangast á við könnun MMR sem birt var fyrr í dag, en samkvæmt henni styðja 56% kjósenda synjun forseta Íslands.
Í könnun Gallup var spurt: „Ertu sammála eða ósammála ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki lög um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinga sem Alþingi samþykkti 30. desember 2009?“
51% aðspurðra voru ósammála, 41% sammála og 8% voru hvorki sammála né ósammála.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is